Í hverfinu eru margir stígar en skipulag þeirra er þannig að engin greið leið er í gegnum hverfið heldur liggja allir stígar í hringi og eru svo tengdir saman með stubbum sem standast sjáldnast á. Á nokkrum stöðum hafa myndast slóðir yfir grasflatir sem mætti gera að stígum til að auðvelda umferð reiðhjóla um hverfið. Þessi horn eru hættuleg á veturna í hálku og langt fram á sumar meðan sandur liggur þar enn.
Ástandið skapar hættu og óþægindi fyrir hjólafólk.
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7424
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation