Baðhús við Skólavörðustíg
Hegningarhússið við Skólavörðustíg er úrelt sem fangelsi og hefur verið á undanþágu hjá heilbrigðisyfirvöldum lengi. Nú er rætt um að leysa þurfi fangelsisplássavandann og reisa nýtt fangelsi. Þá þarf væntanlega að finna nýja nýtingu á þessu húsi. Og ekki verður það rifið. Og ekki verður útliti þess breytt á nokkurn hátt. Því ekki að hafa eins mikið mannlíf þar og við getum? Eitthvað jákvætt. Sem þjappar okkur saman. Og gerir okkur hraustari.
Bara af því bara?
Góð hugmynd. Í Finnlandi er risastórt gamalt hervirki notað sem sána... þetta er á svipuðum nótum
Ef sána læknar það ekki, þá er það banvænt...
Lýst rosalega vel á þessa hugmynd og myndi mæta um leið og opnað væri.
Það myndi ég líka gera!
Ýmislegt væri heppilegra en baðhús þarna td. eitthvað ferðamála- og menningartengt. Ég mæli með Sundhöll Reykjavíkur og stækkun hennar í staðinn.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation