LSH og Reykjavíkurflugvöllur
Það má ekki færa flugvöllinn vegna nálægðar við LSH og helst byggja nýja flugstöð. Það á að gera upp LSH byggingar og troða niður nýjum með gríðarlegum kostnaði vegna nálægðar við flugvöllinn. Þá mun starfsfólk LSH þurfa að hjóla eða taka strætó í vinnuna vegna þess að samgöngukerfið þolir ekki meiri umferð. Legg til að byggt verði nýtt LSH við Hádegismóa og nýr flugvöllur á Hólmsheiði.
Landspítali á ekki að byggjast upp við Hringbraut vegna nálægðar við flugvöllinn heldur vegna nálægðar við Háskólann. Umferðin eykst ekki gríðarlega þar sem þegar er stór hluti starfsfólks við vinnu á Hringbraut - hinsvega er mögulegt að dragi úr umferð þar sem ekki þarf að fara eins víða með vörur og sýni svo eitthvað sé nefnt - ef starfsemin er öll á einum stað.
A) Samgöngukerfið þolir alveg umferðina, enn fremur koma margir eða flestir starfsmenn vafalaust í vinnuna á bíl hvort sem er. B) Er það slæmt að fólk noti strætó? C) Mér skylst að sýnt hafi verið að flugvöllur á Hómsheiði sé óæskilegur. Er það kannski rugl?
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation