Skilasjálfsala fyrir dósir og flöskur í verslanir
Í Reykjavík þarf maður að fara í Endurvinnsluna eða á gámastöðvar til að skila flöskum og dósum til endurvinnslu og nýtingar. Þetta er bagalegt fyrirkomulag sem gerir ráð fyrir að maður hafi bíl til umráða. Í Danmörku (og víðar) hefur lengi verið hægt að koma frá sér flöskum og dósum í þar til gerða sjálfssala og fá kvittun fyrir til innlausnar á kassa. Þá er hægt að rölta með nokkrar umbúðir í einu, um leið og maður verslar í matinn. Borgin ætti að hafa frumkvæði að samstarfi um svona lausnir.
Auðveldum endurvinnslu!
Í gamla daga skilaði maður gleri í sjoppurnar fyrir tíkall. Það mætti kannski útfæra þesslags... án sjálfsalanna.
Endurvinnslusjálfsala í matvöruverslanir - eins og var einu sinni - og er í Kaupmannahöfn - myndi hvetja til enn meiri endurvinnslu!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation