Hvað viltu láta gera? Lagfæra göngustíga og gera ráð fyrir gangandi vegfarendum á gatnamótum Sæbrautar og Holtavegs. Tryggja samfellu göngustíga og almennt bæta öryggi fólks og barna á þessum reit. Á þessu svæði er félagsmiðstöð/frístund, verslunarmiðstöð og strætóskýli og því mikil umferð gangandi vegfarenda sem þurfa örugga leið til að komast ferða sinna. Hvers vegna viltu láta gera það? Mikið af blindbeygjum og þröngum göngustígum á þessu svæði, allt frá Kleppsvegi 142 að Holtagörðum. Gangandi eða hjólandi vegfarendur hafa ekki öruggan stað til að komast á milli staða þar sem göngustígar eru þröngir, sumir enda út á götu án þess að það sé gangbraut. Það er mjög algengt að sjá fólk labbandi á götunni við Kleppsveg þar sem engin örugg gangstétt er þar.
Ég hef búið hér í tvö ár með tvö lítil börn og hef oft velt fyrir mér hversu mikið skipulagsleysi er á gangstéttum og gatnamótum hér við Sæbrautina. Á öðrum stöðum við Kleppsveg er búið að reisa manir og veggi til að hindra greiðan aðgang út á þessa hraðskreiðu götu og það mætti halda að þetta svæði hafi orðið eftir í gatnaskipulagi borgarinnar.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki á borgarlandi. Hugmynd fer áfram sem ábending til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation