Hvað viltu láta gera? fá lýsingu við alla göngustiga í elliðarárdalnum svo að gönguleiðirnar nýtist á kvöldin. eins að fá hita í stígana svo það safnist ekki snjór á þá. eins er hitinn mikilvægur í brekkurnar til að forðast hálu á þeim stígum. Hvers vegna viltu láta gera það? til að auka öriggi gangandi vegfaraenda og auka aðgengi að dalnum allt árið um kring.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Það er ekki stefna Reykjavíkurborgar að lýsa upp malarstíga á útivistarsvæðum. Þeir eru hluti af þeim svæðum sem halda skal myrkurgæðum í hámarki og sporna við ljósmengun. Minni ljósmengun er í samræmi við græna vistspor Reykjavíkurborgar og stuðar að orkusparnaði og betra umhverfi fyrir flóru, og fánu Reykjavíkur. Einnig felur upphitun á stígum í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation