Hvað viltu láta gera? Gera göngustíg í gegnum mön sem myndi tengja saman bílastæði Norðlingaskóla og Lækjarvað. Þarna er mikið gengið yfir hólinn. Slys hafa orðið þar sem brattinn er mikill. Göngustígurinn myndi bæta flæði. Hvers vegna viltu láta gera það? Slys hafa orðið þegar fólk og börn fara yfir hólinn í bleytu, snjó og hálku. Einnig sé ég fyrir mér að flæði milli bílastæðis og Lækjarvaðs myndi batna. Gestir íbúa innst í Lækjarvaði nýta sér mikið bílastæði Norðlingaskóla til að sleppa því að keyra allan hringinn.
Það þarf líka stíg með vestur lóðarmörkum Árvaðar 1 fyrir skólabörnin
Frábær hugmynd - bætir aðgengi Lækjarvaðs að bílastæðum
Mjög þarft verk. Má gera á fleiri stöðum í þessari sömu mön.
Styð þessa tillögu - nauðsynleg ! Mitt atkvæði.
Algjörlega nauðsynlegt að opna þarna á milli. Fullorðnir og börn eru í stór hættu við að fara þarna yfir hvort sem er á sumrin eða veturna. Umhverfi á að vera hannað eftir notkun til að það nýtist vel og er öruggt.
Verður öruggara fyrir þá sem eru að fara um fólk fer yfir mönina og rennur til og slasar sig eins og hefur gerst bæði börn og fullorðnir
Þessi hugmynd fær mitt atkvæði
algjörlega með nauðsynlegt!
Mæli með því.
Í snjóþungum vetri vantar að geta komist út fyrir mönina vegan skafla. Þetta er framfaraskref að rjúfa mönina þarna
Styð þetta
Eykur öryggi.
Bílastæðin eru ætluð starfsfólki skólanna en ekki íbúum hverfisins. Þetta hefur oft verið vesen. Það er öruggara að greiða ekki leið barna yfir í bílaumferðina. Betra að þau gangi stíginn á enda heldur en að fara yfir bílastæðin.
nauðsynleg framkvæmd , sem íbúi í Lækjarvaði fær þessi hugmynd mitt atkvæði MBK Lilja Björg Lækjarvað 21
Ekki þörf á að kjósa Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Slíkur göngustígur beinir skólabörnum inn á bílaplan sem ógnar öryggi þeirra. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Löngu orðið tímabært ! Ég bý í alveg við mönina og sé fólk detta þarna næstum daglega.
Frábær hugmynd, fólk hefur slasað sig við að fara þarna yfir. Dóttir mín labbar þarna daglega og fer alltaf yfir hólinn. Íbúi í Lækjarvaði.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation