Hvað viltu láta gera? Breyta hægribeygju af Borgartúni á Kringlumýrarbraut svo hún verði biðskyldubeygja en ekki háð ljósum. Hvers vegna viltu láta gera það? Á háannartímum myndast svakaleg röð í þessa beygju sem stoppar alla umferð á Borgartúninu og er einfalt mál að laga það með því breyta þessari beygju.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation