Vernda borgarmyndina betur

Vernda borgarmyndina betur

Vernda borgarmyndina betur

Points

Það verði bannað að eiga gömul reykvísk hús til að láta þau eyðileggjast. Sorgleg dæmi eru efst á Skólavörðustíg og á Vatnsstígnum. Það hlýtur að vera til leið til að koma í veg fyrir þetta með meiri vernd, dæmi Gamla Stan í Stokkhólmi. Fjárfestar eru að kaupa húsin til að láta þau eyðileggjast svo þeir geti byggt á verðmætum lóðunum. Á meðan er miðbærinn draslaralegur og svo hverfa húsin fyrir ný steypuhús. Tjónið er óbætanlegt fyrir borgina og mjög grátlegt að sjá.

Og hver á að borga fyrir að lagfæra þessi hús? Ekki vill ég að ríkið borgi fyrir það (s.s. við íbúarnir í landinu) Frekar ætti að setja staðla sem hús þurfa að standast - svo að húsin séu allavega lifnaðarhæf

það hlýtur að vera hægt að setja einhverjar reglur um að á þessu svæði megi aðeins byggja hús svona stór og í þessum stíl. Þannig væri hægt að koma í veg fyrir stórslys í borgarmyndinni.

Hver vill búa í niðurníddu umhverfi. Borgaryfirvöld þurfa að sýna vilja til að beita þeim úrræðum sem eru til staðar. Manni fallast t.d hendur þegar fréttir koma af því að fella eigi niður dagsektir vegna gamla borgarbókasafnsins. Þetta glæsilega hús, sem umhverfissóðarnir seldu og hefur verið að drabbast niður síðan.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information