Hvað viltu láta gera? Hægja á umferð á þessu svæði. Hvers vegna viltu láta gera það? Mikill hraðakstur í gegnum hverfið á þessum stað.
Mjög þarft verkefni. Annar hver bíll ekur þarna yfir hámarkshraða, sumir vel yfir. Mikið af börnum á þessu svæði.
Alveg sammala þessu, margir gleyma ser og keyra hraðara en 30 km
Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Hægja algjörlega á ALLRI umferð yfir ALLAN Langholtsveginn, þrengja götuna bæta hjólastíga, bæta við hraðahindrunum. Bara eins og við Grensásveg, Hagamel og Háaleitisbraut. Það er allt of mikill hraði á Langholtsvegi hvort sem um ræðir strætó eða fólksbíla.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation