Hvað viltu láta gera? Setja upp Ærslabelg (trampólíndýna) á leiksvæðið bak við Vesturbæjarlaug. Þarna eru nú þegar leiktæki og þetta myndi því bæta svæðið og nýting yrði betri. Tilvalið væri að setja þetta á svæði borgarinnar sem var girt af í leyfisleysi á sínum tíma. Hafa nógu stórt þannig að unglingar geti líka notað Sjá t.d. frétt frá nágrönnum okkar um svona leiktæki http://www.seltjarnarnes.is/frettirogutgefidefni/frettir/nr/10743 Hvers vegna viltu láta gera það? Hefur sýnt sig að þetta er mikið notað í nágrannasveitarfélögum, á tjaldsvæðum og út um allt land. Aukið líf og hentar breiðum aldurshópi
Snilldar græja og passar vel þarna.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í Vesturbænum á lóð bakvið Vesturbæjarlaug þar sem sú lóð er í deiliskipulagsferli. Ásamt því að vegna slysahættu hefur uppsetning ærslabelgja í Reykjavík ekki verið talin æskileg nema á þeim svæðum sem er daglegt eftirlit eða viðvera starfsfólks, eins og t.d. í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum eða í Gufunesi. Kosningarnar fara fram 31. október - 14. nóvember nk. á www.hverfidmitt.is Mundu að með því að stjörnumerkja þína uppáhalds hugmynd gefur þú henni tvöfalt vægi!
Frábær hugmynd og góð staðsetning! Löngu tímabært að fá ærslabelg í Vesturbæinn.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation