Hvað viltu láta gera? Setja fallegar þrengingar við Hallgrímskirkju og hægja þannig enn frekar á umferð. Setja gangandi vegfarendur í forgang. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er þó nokkur umferð um Eiríksgötu á þessu svæði og ferðamenn virðast í sífelldu basli við að komast yfir götuna. Sumir ökumenn keyra hægt og hleypa fólki yfir en aðrir ekki. Ég vil að gangandi vegfarendur verði í forgangi á svæðinu, enda hentar það ekki til hraðaksturs, og ég tel að því markmiði verð best náð með mikilli hraðaminnkun og þrengingum.
Já, eða bara hreinlega loka fyrir umferð á þessu svæði og breyta þessu öllu í mannvænt svæði/torg fyrir fótgangandi. Gefa leyfi fyrir sölubása með handverk og minjagripi (kannski takmarka fjöldann samt) og/eða sölubása með drykki og ís.
Það þarf að draga verulega úr bílaumferð á þessu svæði það er svo mikil umferð gangandi vegfarenda.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Þessi hugmynd tengist heildstæðum skipulagsmálum í kringum Hallgrímskirkju og þarf að skoðast í stærra samhengi. Er því ekki hægt að setja þetta verkefni í kosningu en hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation