Breyta nafninu á höfða (t.d. Bíldshöfða) í Svarthöfða
Þarf eitthvað að ræða þetta frekar?
Það er ótrúlega sorglegt að borgaryfirvöld hafi ekki ennþá svarað kalli fólksins um að gefa einhverri götu í höfðunum nafnið Svarthöfði. Það liggur svo beint við. Það
Þetta býður líka upp á að para saman götur milli sveitarfélaga, búa til einhverskonar vinagötusamband. Anakinn í Hafnarfirði gæti tengst Svarthöfða órofaböndum. Svo er spurning hvort Tsjúbakki passar í Breiðholtið.
svo ef það er ekki vinsælt eða hagkvæmt að breyta götunafni þar , þá mætti bara láta styttuna duga eða hjálminn. og svarthvöfða skilti hjá henni , eða nei það væri ofhlaðið, skiltið er óþarfi , það þekkja flestir svarthöfða .
Þar sem að Svarthöfði var einnig einn af Dufgussarsonum á sturlungaöld, þá væri gaman að sjá götu með því nafni. Þar sem það mundi hafa sögulegt gildi jafnt sem skemmtigildi.
ég styð þetta heilshugar. Jafnframt vil ég að einu fellanna í fellahverfi verði breytt í Falafell
bjóðum Svarthöfða velkominn í Reykjavík.
Íslenska nafnið á Chewbacca er Tóbakstugga
Þess má geta að Svarthöfði er til sem örnefni, samanber Svarthöfða við Vonarskarð.
Það hefur verið gert, hún er uppá Höfða.
svo mætti hafa styttu af svarthöfða , hvar myndi hún sóma sér, á brúninni sem blasir við friðarsúlunni, með upplýst glersverð á lofti, með kraftkastara og langri litaðri súlu upp í himin og mótor eða vindknúinni hreyfingu á úlnlið hans eða öxl svo ljóssverðið hreyfist, og rétt sverðhljóð rafmagnshljoð úr hljómkerfi. og orðin ég er faðir þinn. eins og hann væri að berjast við friðarsúluna í viðey, eða við innakstur í höfðana. eða bara hálminn kannski. í yfirstærð. á smá súlu eða fæti, þeir gætu smíðað hjálminn í sjálfboða þeir sem vinna á höfða úr bílaboddíhlutum. úr ww bjöllu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation